Starfsfólk

Inga Sólnes, framkvæmdastjóri

is_minniInga er með BA frá Háskóla Íslands í dönsku og frönsku og BA frá Kingston University í London í félagsvísindum. Inga hefur áralanga reynslu af störfum innan ferðaþjónustunnar m.a. sem leiðsögumaður með erlenda ferðamenn um Ísland, sem starfsmaður upplýsingamiðstöðvar ferðamála í Reykjavík. Inga hefur verið verkefnisstjóri fyrir Vestnorræna ferðamálaráðið (samstarf milli Íslands, Færeyja og Grænlands), upplýsingafulltrúi hjá ferðamálaráði Íslands og félagsfræðikennari hjá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Auk þess hefur Inga kennt félagsfræði og samskipti á ýmsum námskeiðum, m.a. hjá Iðntæknistofnun Íslands.
Inga stofnaði ferðaskrifstofuna Gestamóttökuna ehf  - Your Host in Iceland árið 1996


Helga Gunnur Þorvaldsdóttir, verkefnastjóri

helga gunnur_minniHelga Gunnur er með diploma í ferðamálafræði frá Istituto Internazionale di Scienze Turistiche í Flórens á Ítalíu. Helga hefur starfað í mörg ár innan ferðaþjónustunnar, m.a. sem markaðsstjóri Flugfélagsins Jórvík, skrifstofustjóri Northern Lights Tours í Englandi, við almenn ferðaskrifstofustörf hjá Arctic Experience í London og sem fulltrúi hjá Ferðamálaráði Íslands á Akureyri og hafði þar umsjón með Handbók Ferðamálaráðs. Helga vann einnig nokkur sumur á Upplýsingamiðstöð ferðamála á Akureyri.

Kristjana Magnúsdóttir, verkefnastjóri

kristjana_minniKristjana hefur starfað í mörg ár innan ferðaþjónustunnar og síðastliðin 9 ár við skipulagningu ráðstefna og funda. Hún stundaði nám í ferðamálafræði í Menntaskólanum í Kópavogi  og nú nýlega lauk hún Diploma í Stjórnun og Forsystu í Háskólanum í Reykjavík. Kristjana hefur áður starfað hjá Samvinnuferðum Landsýn, Íslandsferðum (ráðstefnudeild) og Congress Reykjavík svo eitthvað sé nefnt. Kristjana  bjó í Noregi í 5 ár og talar og skrifar góða norsku.

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.



Einar Örn Þorvaldsson, tæknimaður

einarEinar Örn er tölvunarfræðingur frá Háskóla Íslands. Hann viðheldur tölvukosti Gestamóttökunnar auk þess að hafa umsjón með heimasíðum ráðstefna og rafrænni skráningu.





gesto02
Komdu á okkar fund
Gestamóttakan - YourHost in Iceland
IcelandicEnglish
ferdamalastofa.mini
Gestamóttakan ehf
Kirkjutorg 6
101 Reykjavík
Sími: 551 1730, GSM: 692 1730
gestamottakan@gestamottakan.is

fb

inspired

how_cool

Vefhönnun, Hugsa sér !